11.7.2007 | 18:43
Somewhere over the rainbow....
Erum við ekki öll að díla við það sama...??
Óttann við að við séum ekki nógu góð...eða nógu klár...nógu hugrökk...eða nógu falleg... Óttann við að láta okkur dreyma...að það sé asnalegt að eiga drauma af því að þeir munu hvort eð er ekki rætast...
Við förum öll í gegnum stundir þar sem allt er auðvelt og allt gengur vel, sjálfstraustið í botni og við finnum að við getum sigrað heiminn ! Þá er gaman að vera til.
En svo koma tímabil þar sem ekkert gengur upp, ekkert nema mótlæti og allt virðist ganga á afturfótunum. Við missum sjálfstraustið, förum að efast...efast um okkur sjálf og efast um að við munum nokkurntíma verða nógu góð til þess eiga skilið að draumarnir rætist.
Það er akkúrat á svona tímum sem það virðist vera miklu auðveldara að gefast bara upp frekar en að vinna á móti erfiðleikunum. Þá er bara miklu betra að pakka draumunum niður og gerast hinn venjulegi "meðal-Jón" sem þarf ekki að díla við hlutina, heldur flýtur bara með straumnum.
Þá er betra að sleppa því að mæta á STS, því þar er bara verið að núa því okkur um nasir hvað við erum glötuð...svo ekki sé nú talað um að sleppa því að fara á Extravaganza...þar er bara verið að strá salti í sárin !!
En.....stoppum aðeins....og hugsum til baka... Hverju hefur þú áorkað síðan þú tókst það stóra skref að verða Herbalife dreifingaraðili ?? Hvað hefurðu lært, sem á án efa eftir að gagnast þér um ókomna tíð ?? Og hvað hefur þú gert til þess að hjálpa öðrum við að breyta sínu lífi ?? Hvað hefur þú látið gott af þér leiða ??
Stundum þarf maður að spóla til baka og horfa á heildarmyndina. Og gera sér grein fyrir því að þó að maður sé ekki komin þangað sem maður vill vera er ekki þar með sagt að maður sé glataður...og muni aldrei komast á leiðarenda.
Ég átti það til að frjósa hreinlega og vilja bara gefast upp þegar erfiðleikar blöstu við, bæði stórir og litlir, hvort sem það var bara í lífinu eða Herba-lífinu. En þökk sé þeim þroska sem maður fær að taka út í Herbalife, þá hefur mér lærst það að þegar erfileikar banka upp þá er eitthvað spennandi ferli að fara í gang og eina sem ég þarf að hugsa um á meðan er að gefast ekki upp ! Þá veit ég að það er verið að kenna mér eitthvað sem mun koma mér til góða aftur og aftur, ég veit að eftir að sigrast á erfiðleikum verð ég sterkari og betri á leið minni í að láta alla mína drauma rætast.
Eitt það eftirminnilegast af Presidents Sumit í Los Angeles var þegar Alan Lorenz talaði um drauma.... Þegar hann var búin að klúðra sínu dásamlega lífi sem hann fæddist inní, lagði hann af stað til að finna Galdrakarlinn í Oz. Á leið sinni hitti hann Fuglahræðuna, Tinmanninn og Ljónið, sem voru líka búin að týna draumunum sínum og efuðust um sjálfa sig, hann tók þau með sér og saman fóru þau og hittu Mark Hughes til þess að eignast drauma.
Smelltu á linkinn og láttu Alan Lorenz taka þig í ferðalag til Oz !
Dustaðu rykið af draumunum þínum því þú átt allt það besta skilið !
Og vertu með okkur um helgina á frábæru RJ kvöldi á föstudaginn kl. 18 Grand Hótel og svo á mögnuðum STS skóla á laugardaginn, Grand Hótel.
Og til þess að gulltryggja draumana kemurðu að sjálfsögðu með okkur til Kölnar á Extravaganza !!
Halldóra
Athugasemdir
Já þetta er svo sönn pæling hjá þér, maður er allt of fastur í að brjóta sjálfan sig niður yfir því að maður sé ekki nógu duglegur og komin eftir á miðað við planið en gleymir að staldra við að hugsa um það fólk sem maður er þó búin að hafa áhrif á og hversu gott maður hefur það í lífinu..
Ég var einmitt að horfa á myndbandið með Alan áðan, fékk alveg kökk þegar Pedro kom upp á svið og grét með honum..
Hlakka til að eiga frábæra helgi með ykkur elskurnar!!
Hildur (IP-tala skráð) 12.7.2007 kl. 02:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.